Á lífsins leið kynnist maður mönnum
maður týnir þeim svo í lífsins önnum,
en þeir veittu manni stuðning og ráð
og urðu örlagavaldar þegar að er gáð
svo er einnig um einn góðan mann
sem að ólán lífsins og ógæfan fann
hann var mér vitur, góður og meyr
það er harmur, er góður maður deyr.









