Maður deyr

 

Á lífsins leið  kynnist maður mönnum

maður týnir þeim svo í lífsins önnum,

en þeir veittu manni stuðning og ráð

og urðu örlagavaldar þegar að er gáð

 

svo er einnig um einn góðan mann

sem að ólán lífsins og ógæfan fann

hann var mér vitur, góður og meyr

það er harmur, er góður maður deyr.

 

Share to:

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Tumblr