Báráttuþrek
Dagarnir falla
í röð hversdagslegrar
grámyglu
í þessu veðri og árstíma.
Baráttuþrek jákvæðni
á erfitt um vik
að ná fótfestu
í sál minni í dag.
Þó mun ég reyna
að birta hugarsali mína
með bjartsýni og framsýni
og leita svo uppi
festu og tilgang
hlýju og gleði
raunveruleika lífskraftsins
sem við leitum öll að.
Ætlunarverk
Að finna fyrir vellíðan
í sál og hjarta mínu
yfir ætlunarverki
sem ræst hefur loks úr
er mér sæl tilfinning
og giftusamleg sefjun
á ólgu daglegs amsturs
og svekktum væntingum.
Hekla
Ég alltaf sakna þín
góða systir mín
alltaf að mér hugðir
í lífsins áreynslu.
Þú drauma hafðir marga
og nokkra fékkstu fengið
en draumarnir stærstu
lífskeið og fjölskylda
voru þér meinaðir ávallt
réttlætið hvergi fundið
til handa þinni draumsýn
aðeins kvalir og vonin tærðar.
Þú elskaðir lífið og gerðir
allt sem þér var unnt
að ná fram þínum vilja
meðan þrekið var í sál.
Þinn dauði var sönnun
um ranglæti og siðferði
að gera rétt við aðra
er ekki trygging sanngirni
þegar almættið vegur og metur
og skammtar þér gæfu og tíma
því andlát þitt í spítalarúmi
er guði til þrálátrar skammar.
Pabbi
Góðan mann fékk ég föður
fyrirmynd hvergi betri
ást og áhuga ávallt
hann gaf mér með hugarreist.
Mikill var hann ávallt
meðal manna og meðal allra
hans leið var þó aldrei
létt né sársaukalus för.
Barðist hann mótlæti gegn
frá æsku til manndómsára
vart hugað líf né framtíð
með djörfung bæði vann.
Fann ást með góðri stúlku
fékk börn með henni notið
þó lifðu þau ekki öll
og fjölskyldu byggði upp.
Með sigrum komu áföll
með gæfu skuggi fylgir
reynt að gera bestu úr
lífið fjölskyldu áfram hélt.
Hans afrek og viðurkenningar
virðing fyrir þér borin af öllum
breyttu ekki auðmýkt andans
eða hjálpsemi hins góða manns.
Ávallt til orrustu boðinn
málstað sem veikur var
fjölskyldu og vinum jafnt
og fyrirmynd bestur sýndi.
Flæði
Heimurinn er flæði
ósýnilegt orkuflæði
frá vindum til vilja
gegnum loft og sálir.
Ást er flæði orku
jákvæðrar orku
frá þér til annars
óeigingjörn hlýr orka.
Orka frá mér streymir
kemur inn að baki mér
flæðir út að framan mér
tilfinningar og rafmagn.
Hugsanir tefja flæðið
áhyggjur stöðva það alveg
núvitund losar um flæðið
áhugi og vinna virkja það.
Væntingar
Kvöð hvers er búin til
af einum og hverjum
sem göfugt stigaþrep
að ímynduðu takmarki
það liggur svo yfir lífinu
ofan á sál minni og hugarró
eins og mara skuggaveru
sitjandi á bringu sofandi manns
þó er það nú eini sinni svo
að við engann er að kvarta
þessi myllusteinn væntinga
er skapaður af mér, fyrir mig.
Tindurinn
Í æsku maður leitar sér að
farvegi, köllun og krafti til
að gera úr sér og verða meiri
verða mikils metinn augastaður.
Vinnusemi, elja og þolinmæði
færa mann nær sínu takmarki
upp hlíðina og upp að tindi
og erfiði færir mann tíndinn á.
Þegar á tindinn loks er komið
er gaman að sitja með útsýnið
að sjá farin veg og erfiða för
þakka sjálfum sér styrk og þrek.
Svo kemur það sem enginn segir
um hið hjartfólgna nýja norm
tindurinn fer úr spennandi sýn
í hversdagslíf og hversdags útsýni.
Eftir mörg ár á toppnum, þá hugir
maður hvort þetta sé allt sem er
þetta er gott en ekki svo markvert
hamingjuna er ekki að finna hér.
Efinn bankar þá á hugans dyr
valdi ég för upp réttan veg
eða upplifa allir sömu taug
þegar afrekinu er lokið þeim hjá.
Bærilegur
Það sem áður var óbærilegt
hefur mér síðar orðið bærilegt
neikvæðar ósjálfráðar hugsanir
eru færri og skilningur minn meiri
tilveran og tjáskiptin eru áskorun
á sumum dögum framar öðrum
hversu fast sæki ég framtíð mína
þegar ég hef sæst við nútíð mína?
Ég hef fundið loks gullið jafnvægi
í nútíð, hugsun og tilfinningum
eftir margra ára vinnu sjálfsins
vanlíðanin horfin hægt á braut.
Næst er að ræsa vélagný eldmóðs
í upplifun, gleði og styrk mínum
með eigin vilja og eigin sköpun
sækja mér mitt næsta ævintýri.
Maginn minn
Ég hef bumbu fyrir maga
eins og margir á mínum aldri,
ég fer í ræktina hann að laga
en næ aldrei þeim merka galdri.
Ég reyni út matnum að grynnka
og hreyfi mig sem óður maður sé,
samt er maginn aldrei að minnka
ég áfram lyfti með höndum og kné.
Ólán
Óheppni er óskiljanleg mér
og pirrandi þegar bíldekk lekur
af hverju eltir ólánið mig í dag.
Ég krefst þess að ólán mitt sé talið
vera ólán í láni frá spellvirkjum í tíma
sem ég skila á morgun með skömmum.
Ég hreyti í örlögin mínu blóti og bölvi
og öskra að þeim mínar meiningar
svo þau hræðast og skakklappa burtu.
Ég byggi upp líf mitt að nýju í dag
eins og ég hef upp sjálfan mig byggt
eftir skipbrot hugans míns og frama.
Seinni tíma menn
Eftir skipbrot huga og heilsu
niðurbrot sjálfsins og hegðunar
með ofhugsuðum ótta og kvíða.
fór ég í viðgerð og hugurinn í slipp.
Erfiður tími sjálfmyndar minnar
horfast í augu við veikleika mína
uppgjöf á lífi gegnum vín og lyf
sem flótta frá minni eigin tilveru.
Á viðgerðar verkstæðinu voru
menn og konur af öllum gerðum
með slæmar brotalamir og bresti
eftir tapaða báráttu við eigin huga.
Þarna voru einnig á meðal hinna
menn sem ég fann samleið með,
með hverri sögu og hverju orði
bast saman með okkur vinarþel.
Oft dragast saman líkar sálir, en
okkur drógu saman líkar kvalir
auk verandi flestir af sama meiði
með álíkar sögur og álíka angist.
Þegar dvöl okkar lauk um síðir
og bættari við vorum flestir þá
þá sammæltust menn að eiga
hvorn annan að í næsta ólgusjó.
Að stilla sig saman í skilaboðum
og hittast hvern mánuð til spjalls.
Það að eignast þá svo að vinum
á okkar seinni helmingi lífsins.
Morgunferð í miðbæinn
17. júní 2025
Ég held keyrandi
í miðbæinn
með eiginkonu mína
og mæði mína
yfir að þjóta og hlaupa
til að fá að standa
við ókunnugra axlir
sýndarmennsku þjóðrækni.
Kominn niður í bæ
bílnum hjá kirkjugarði lagt
veður milt og dropar af himni
hávaði bílum frá er líkur
skerandi löngu ölduróti.
Héldum áfram að Austurvelli
gegnum rigningarúðann
fundum fjölda manna standa
með bakið að okkur sigað
muldur úr hljóðnema fjarri,
fann eyru okkar loksins
heimamenn og ferðamenn
foreldrar og grátandi börn
regnhlífar úr slíðrum reistar,
eyrum sperrt og augum pírð.
Maður er manns gaman
jafnt í bleytu sem þurru
hefðin og venjan upphefð
ást á lýðveldi og frelsi lands
sýnd með samstöðu manna.
Forseti landsins stáli stappar
í hjörtu og huga landsmanna
meinar vel og vill vel vanda
næstu framtíð allra hér
telur kjark í vonir sála.
Tónar og kvæði eldri aldar
sveima um loftið eyrna til
gæsahúð, hjartað og stoltið
vakna til lífsins en á ný
við erum frjáls og sjálfstæð,
heiminum í.
Glímt við metorðin.
Mér líður eins og ég sé að glíma
við lífið og framtíðina á sama tíma,
og tekst á við skrattann á degi hverjum.
Það er andleg þyngsli um háls mér
eiturslanga ómerkilegrar tilvistar
þyngir mig og herðir að mér stöðugt,
mér líður eins og ég ætti að vera að gera
meira í lífinu, afla meiri peninga og metorða,
ég eigi að vera meiri fyrirmynd sona minna,
að ég eigi að vera grennri en ég er í dag
að ég eigi að vera þetta og hitt, gera betur
að ég eigi að vera annar og betri maður
en ég upplifi mig í dag vera meðal manna.
Kannski ber ég mig saman við pabba þá,
við klára manninn, drifinn áfram af orku
sinnar eigin sálar og mótlætis heilsunnar
að sanna sig alveg utan heimabæjarins,
í eigin augum, konu sinnar og barna sinna.
Mín tímamót (24.6.2025)
Þennan morgun
og þennan dag
þyngsli í hjarta mér
framtíðin óráðin
þoka framundan
ég bíð við ósinn
og horfi til nýrra
ár farvega að róa
gamla áin mín
grynningar einar
nýi farvegur minn
áin er grynnst
næst mér og lengra
ég er búinn að
róta í árbotninum
leita að réttri leið
ég stend á tímamótum
mínum tímamótum
ég er að kveðja brott
gamla heiminn minn
gamlar ástir geymdar
fleytt brott til algleymi
ný stefna upp tekin
siglingatæki þjálfuð
en þó mér óþjált að
finna fyrstu skrefin
kjölfestu að stíga á
fullvissuna um vægi
valkostina að velja
forgang og vægi
ég veit ég þarf að
róa meira, róa meira.
Alex á afmæli (27.6.2025)
Alex á 18 ára afmæli í dag
hann er góður og hjarhlýr maður
ég er öruggur og stoltur faðir
hann á framtíð mikla fyrir sér
ég vil tilgang og ást í lífi hans
heiður, virðingu, áræðni og dug
meistari hæfileika og meistari fjár
góður maður, faðir og eiginmaður
bjart gyllt stjarna í svörtum heimi
uppbygging sjálfsins og persónu
hann lifi í eigin frelsi og tilgangi
opinn, bjartur og ævintýragjarn.
Hekla systir mín
Ég sakna þín Hekla
vil hafa þig hér
þú hefðir í gær átt að vera
heima hjá mér
Alex er orðinn maður
og bauð afmæli heim
þú hefðir komið fyrst
brosandi og Alex kysst
færandi gleði og gjöf
bjarta orku og ást
eilífa tryggð og hlýju.
Þú veittir mér ávallt
þinn stuðning
þína hjálp
þína leiðbeiningu
takk Hekla
elsku Hekla.









