Dagarnir eru hlutlaus herbergi
alveg tóm sem yfirgefið húsnæði
og þú fyllir þau jáfn óðum
með hverri hugsun og líðan
áður en þú byrjar daginn þinn
en þetta þarf ekki að vera svo
þetta er engin óskrifuð regla,
því að hvert rými stendur autt
með göldrum athygli þinnar
þú skapar rýmið og rúm þitt.









