Blær lífs
Ljóðabók nr. 3
frá 1992
_____________________________________________________
Blær lífs
Stormsveipur tilfinninga
hann feykir fáfræði og hugleysi
ofan af jarðvegi vitundar
og leyfir blómum
að skjóta rótum.
Blærinn er andvari þess skilnings
sem fáir meðhöndla
því hann feykir burt
ryki samfélagsins
og almúgans.
Blær lífs er ljóð.
Ljóðabók
Fáðu þér sæti
brátt muntu ferðast
undir yfirborði túlkunar
hins hversdagslega.
Fórn
Fórnandi
allt er fórn
ég skal fórna
jú, víst
fyrir ævintýrið
fyrir ferðalagið
fyrir gjöfina stóru
og eigingirnina.
Allt er og verður
hreyfingarlaust
þar til ég fórna mér
í þágu alls.
Ljóðaveiði
Ægir sanni
hjálpaðu mér að grafa
eftir fjársjóði tilfinninga,
þessum eftirsótta kistli
sem hefur að geyma
formúlu
guðlegs eðlis.
Falin ást
Sókn að ást
hefur alltaf forgang
fólk horfir
það tælir
vonar
grætur
stillir sér upp
í skrúða fatnaðar
og svipbrigða
verður hylling
heldur skrúðgöngu
innan skemmtistaða
vonar að áhorfendur verði
dýrkendur sínir
og þjóni ástgirni þeirra
þjóni eigingirni þeirra.
Fegurð
Er það satt?
Er það fallegt?
Já
engin viðmiðun
ekkert óeðli
engar blótandi kímur
það er eðli hvers
sem fundið er
hver ávallt eitthvað
fallegt sér
jafnvel gráar skífur
kasta litbrigðum.
Eldur skálds
Hvernig er það
að vera ungt skáld
að vera krítiseraður
í ösku skammar
af ofmetnum einstaklingum
sokkinn að hjám
í hugsunarstöðnun
hugsandi í allar áttir
í leit að andgift.
Endarímur
Stíll þeirra verður svolítið gleiður
það illa gerður að ég verð reiður
að heyra orðin mín svona illa snert
það er eins og hundur hafi kvæðin gert,
ég vona að þú ekki sál mína kyrkir
óska ég þess nú að þú eigi framar yrkir
ljóð er ást, ást er kvæði
ljóðin eru ást, andleg klæði.
Samtal
Greinar risastóra
birkitrésins
þukla örlítið
á skjálfandi runnanum
þokulæðingur
reynir sáttaumleitun
meðan andvarinn hvíslar
lágt, lægra, lægst
og spilar
á nátturuna.
Nema …
Ég hef leikið
í draumum ýmsar hetjur
prinsessan hefur ávallt
orðið mín
hugrekki mínu
eru engin takmörk sett
nema …
veruleikinn.
Viðtal óskast
Hvort við gætum
fundað saman
og rætt um
tilfinningar okkar
talaðu
segðu mér frá þér
þér allri
ég skal
fullnægja
forvitni þinni.
Á bömmer
Að ég skuli þurfa
að ganga ofan í
spor annarra
í sífellu
og ríma
vera félagsgríma
sóa mínum tíma.
Til fjandans
með fjöldann
og félag manna
ég er rekaviður
einn
stoltur
og sperrtur.
Heima þunglyndi
Bjargarlaus
ofan í dyngju
heimahaganna.
Drekkandi skál
eigin truflunar
og öskrandi
á púðalagða veggi
eigin hugar.
Örvinla
í sömu sporum
með opin heila
er ég.
Það er ég!
Dæmisaga
Eitt sinn var ungur
kínverskur bóndi.
Hann hafði keypt sér akur
og byrjaði að plægja hann.
Stóri bolinn gengdi
hlutverki sínu vel
var þó hægur í förum.
Nú lifir bóndinn
dæmigerðu lífi
vinnan gengur hægt
en örugglega.
Vel hann sprota sáði
sælt líf hann þráði.
Lífið greiðlega gekk,
góða framtíð hann fékk.
Farmiði
Ég er kerti
veikbyggður
flöktandi logi.
Ég er maður
veikbyggður
hverfulur hugur.
Ég er lífið
veikbyggður
litríkur reitur.
Ég er dauðinn
sterkbyggð
dökk endastöð.
Ég er kertið
sem heldur á farmiðanum.
Dúfa dauðans
Bréfdúfur fortíðar
fljúga milli glugga
heima minna
þar sem ég sit
úti í horni
í aldna stólnum
og bíð
eftir dauðanum.
Þá kemur hann
vængjaður
í hvítum klæðum
með skilaboðin
„þú er úr leik“.
Sjálfsmorð
Af hverju
að draga út sjálfur
uppáhaldstönn sína
hún verður
aldrei endurbætt.
Hún var jaxl minn
sem ég beit á
óvinur matarins
hermaður hégóma þíns
ekki drepa sjálfan þig.
Ást
Fagra fleytan
sem eilíft siglir
út við sjóndeildarhringinn
ákallar mig
með dreymandi töfrum
og huglægum gátum,
þar sem ég sit
við kíki minn
og velti vöngum
yfir fjarlægðinni
sem skilur okkur að.
Andri
Þú ert gamla eikartréð sem enginn hróflar við
nema vindkviður ástarinnar.
Þú ert skjól okkar kvilla,
hægri hönd okkar sáluhjálpar og öryggis.
Þú ert vinur minn.
Lygin
Lygin er skuggi siðferðisins
tryggð er mikið notað reipi.
Ástin er handtak
sem losar gripið.
Veikur hugur
Mínar áhyggjur eru andvari
sem slekkur næstum
á kerti mínu
ég er flöktandi logi.
Trumpet concerto
Ég sit í hátíðarsalnum
öll hirðin situr þögul og hlustar hugfanginn
á nýjan konsert tónskáldsins.
Tónlistin ferðast frjáls um salinn
en er trufluð af saklausu daðri
og hjákátlegum brosum
hvítu hörundi og rjóðum kinnum.
Lífsglöð augu glansa
í einbeitinu sinni og æsku
ákalla tónlistina
og biðja um ævintýri.
Dauði minn
I.
Ég man þann dag
er musteri mitt hrynur
ég flyst búferlum
og flyt í aðra höll
dvelst í öðrum sölum
sef í öðrum rúmum
horfi út um aðra glugga.
Ég man þann dag
ef hann skyldi ákveða
að koma og eyðileggja
musteri mitt
II.
Dauðinn er mér huggun
óttablandin von
hann er trygging þess
að lífið hafi upp á fleira að bjóða
en fastar skorður.
Dauðinn er hurð
það er þitt að trúa
hvort hún opnist eða ekki.
Fyrir mér er dauðinn
fjarlæg opin hurð.
III.
Dauði er fáfræði
hann er staðreynd
hann er sannleikur.
Dauðinn er hið sanngjarna
tilboð Guðs
til hinna lifandi
því til að deyja
þarftu fyrst að lifa.
Hver er ég?
Ég er maðurinn
sem horfir í spegilinn
ég er spegilmynd
af einhverjum.
Hver er ég?
Ég er fullkomnun hugsans
sem aldrei fæðist.
Dægur
Allir hræðast og sýna hörku,
stillingu og yfirvegun.
Hvað varð um eldmóðinn
hita tilfinninga flaumsins
og baráttuna
við ástina?
Nýtið ykkur tímaskeið æskunnar
því það hverfur jafnóðum.
Sýnið sál ykkar, ykkur sjálf
fórnið amstri fyrir hamingjuna,
því hamingjan er
afar sjaldgæft blóm.
Blóðrík tár
Tár og blóð
tákna viðurværi andans.
Stríð er ástarhjal karlmennsku
friður er blítt orð.
Tár og blóð
tákna þrep mín
að stökkpalli þroskans.
Þroski og ég erum eitt,
ómælanleg eining.
18. mars 1992
Á morgun á ég afmæli og verð tvítugur
¼ af ævi minni lokið.
Hinn undaverði og fjörugi tími lífs míns
kveður mig með óþægilegu handabandi.
20 ára gamall
Á þessum afmælisdegi mínum
þreifa ég eftir
ósýnilegum öryggispalli.
Ég syndi hálfnaður
með hálfa ævi mína.
Ströndin og himinhvolfið
kvíða ekki ferðalangnum.
Ég sé glitra í framtíð mína
loftkastala og skýjaborgir.
Mér leiðist
Hugur minn gengur
í sementskóm.
Frjáls andi minn er fastur
eins og fugl sem flýgur í forinni.
Tilfinningar
Straumar og flóð
náttúrulegir stormar
þessar óstöðvandi bylgjur
af gleði og harmi
þessar heilabylgjur
sem drekkja reglum
og siðferði.
Persónuleiki
Steinvalan mikla
situr kyrr
á sólbjörtum degi.
Sviplaus ásjóna hennar
og harðmeitluðu tilfinningar
blása sig út
stoltar og hrokafullar.
Þær fagna deginum
blóta sólina
karpast við myrkrið.
Harðgerð vera er ég.
Skammdegið
Föstudagur í skammdegi
friður
fallegt lag spilar undir friðinn.
Tíminn er utan tíma
situr þegjandi
við hlið mér
og brosir við mér.
Ó hve sál mín kallar
til annarra sála
og býður þeim gefins
ró og hamingju.
Kirkjan
Áðan heimsótti ég
hús andans
musteri mitt og allra.
Ég sótti þar
í styrk minn
og hinna.
Ásamt öllum
er ég Guð.
Guð er allt
hluti af mér
ekki húsbóndi
því ég er ekki þjónn
hvorki manna né guða.
Ég er hlutur
sem enginn fær að brjóta.
Kveðskapur manna
Hann fylgir okkur
kælir okkur
eða yljar
lítilsverður fyrir flestum
en lofsverður og virkjaður
hjá hinum fáu
hjá mér.
Bréfdúfur huga míns
fljúga með tilfinningar mínar
gegnum hringrás vitunar minnar.
Tilveran
Tilveran er græn
af öfund
og velgju
út í lífsgleðina.
Heimska
Tilgangsleysið
gleypandi eymdin
vanfærni hugans
augu sem sífellt
spyrja, og hafa
ekkert að segja
ofar sett en fáfræði
já,
heimska.
Draumórar
Fuglarnir eru til
þeir eru mínir
til áhorfunar.
Þar eru sebrahestar
líka til staðar.
Yfirleitt tek ég meira
mark á þeim
þeir eru jarðbundnari
eins og ég.
Þó er ég fugl
eins og allir sem eru
í fiskamerkinu.
Blær lífs II
Blær líf er ljóð
Blær lífs er draumkenndur sannleikur á blaði
Blær lífs er kröftugur straumur heitra tilfinninga
Blær lífs er sannfæring mín um tilgang lífsins
Blær lífs er fæðingardeild ferskra huga
Blær lífs er skilaboðþjónusta hugsuða
Blær lífs er ljóð
Klukkan tvö um nótt
Jæja, klukkan er tvö
Ég þarf að fara að sofa.
Fangavörður samviskunnar bíður
eftir hreyfingu frá mér,
en hlær að mér.
Trúður er ég,
ég verð að fara að sofa
til að geta lært á morgun
góða nótt.
18 ára
Þegar lífið sýndi sig
og gaf mér ráð,
dapraðist mér flugið.
Ég fer að brotlenda
Já sýnið mér hörku lífsins
ég er til í tuskið.
Lag
Ó hve við gengum
ástfangið par
ég raulandi
með tár í stað tóna
þá var ég maður
maður fortíðar
ég elskaði stjórnlaust
á kostnað hjartans
nú geng ég áfram
gátan er ráðin
og sárið gróið.
Ég raula þó.
Rómantísk ganga
Ánetjun fáfræðinnar
tilgangslaus glaumur
jú allra manna ganga.
Ha ha ha
hún er hörð
þessi stytta dýrkunar
þessi stytta ástar.
Þetta er fólkið
sem gengur í átt
að steinrunnum afglöpum.
Námsárangur
Nemandinn og tilhneigingin
féllust í faðma yfir námsbókunum.
Þrautlaus velgjan elti þau rólega
að björgun gleðinnar
og stuggaði við þeim
þar sem þau stóðu.
Nemandi sá það sér til sóma
að drepa velgjuna
eins og ég gerði í gær.
Hún
Jú, enn er það hún
gyðjan með heillabrosið
hví er hún svona mögnuð.
Hún er mér hættuleg
óafvitandi meðhöndlar hún
langanir mínar miskunarlaust.
Það sannar sig
reipi ástarinnar er teygt og slítið
en ekki rofið
hún er sá fortíðardraugur
sem ég fagna
og í laumi þrái.
Mýrin
Ég hér, hún þar
bæði kyrr
hvorugt þorir
að kanna jarðveginn
sem skilur okkur að.
Við köllumst bara á
um hluti
sem engu máli skipta.
Engin áhætta
engin ánægja
engin faðmlög
eða órofnar varir
aðein köll í mýrinni.
Regn
Allt er svo einstrengjað
svo kröfuhart
allt of líflegt.
Þegar grasið himnana um regn
legg ég einnig fram
bón til guðanna og segi:
„Helltu yfir mig lífinu,
ég vil blotna í gegn!“
Hún aftur
Ímynd hennar eltir huga minn uppi
hvenær er fórn til guðanna
réttmæt og nauðsynleg?
Hugarástand mitt er málverk
Fjall ástar
ósar ástríðu
vonin er söguhetjan
í skugga feimni.
Sprenging
Sprenging
hróp og köll
fagnaðarlæti.
Sprenging
grátur og blótyrði
fórnarlömd sögubóka.
Sprenging
andartak
algleymi eldsins.
Andartak.
Glas
Ójá, vínið
það yljar mér
kverkarnar lifna
og hugurinn
seilist hærra.
Æðstu hugsjónirnar
og góðu minningarnar
sækja að mér
og minna mig á
hve lífið er
fjölbreytilega yndislegt.
Ójú, ég man
allt saman núna.
Pressan
Þið lægsti sori
og dýpsti almúgur
ég fyrirlít ykkar hætti
ykkar hegðun og vegu.
Af hverju spillið þið
öllu velsæmandi?
Blaðasnápar.
Það og hún
Allt áþreifanlegt
er bundið við hugsun
líka ég.
Ég græt allt
hægum þurrum tárum
þó mest hana
okkar leynisamband
við elskuðumst
undir feldi leyndar
hvílík kona.
Víkingar
Þeir drukku
og drápu
trúðu á krumma.
Útfjarað yfirborð sverðseggja
og blóðidrifna axa
ákafir boðberar
drukkina menningar.
Rússnesk stytta
Sviplaus stytta
rómuð stemming
svört stillimynd
járnklumpur
hnepptur í þrældóm
mannlegrar lögunar.
Hvert fór hún daman
fyrirmyndin,
frægð þín og æskuljómi?
Op
Svo margt ósagt
týndur bíll
við kant hraðbrautar.
Ég keyri ofan á orðum
þau bera mig að opi
að inngangi lífsins.
Þá það
Ég elska þig
við gætum tendrað
bál ástríðu
og leikið okkur að eldi.
Ég gef þér mitt hjarta
taktu það til þín
annars veslast ég upp
og gefðu mér þitt.
Látum lífsstrauma okkar
sameinast í mikið fljót
og berast með sælunni
í átta að algleymi.
Ástarbréf
Ó hve við gætum elskað
þú ery gyðja
aðdáum speglar fullkomnun
ég tilbið bros þitt
og augnaráð.
Ég bið þig að launa mér
ég vil ást þína
hún verður mín næring
mín huggun
von og athvarf.
Ekki vega bón mína
ég bið þig
taktu mig að þér.
Laugardagsganga
Aðskotahlutur í samfélaginu
vægðarlaust ég gekk
ofan á varnarlausri götunni
og ógnaði umhverfinu.
Litir húsana
æptu á mig
grasið
bölvaði mér
fuglarnir
vöruðu við mér.
Ég barðist vel
við gangastéttina
með skósólunum
ógnaði trjánum
með augunum
og hyllti heiminn
með hugsunum.
Síðan hélt ég heim
frá blóðistorknaða
vígvellinum
og blótaði sjálfum mér
fyrir að lifa.
Vorkvöld
Allt er fallegt
heiðblár himinn
geispandi gras
tognauð tré
og ég.
Sólin gægjist
í síðasta skiptið
yfir heillalandið
og kveður þig
heilsar asíu
og býður mér
góða nótt.
Rauði penninn minn
Þögli þjónn
þræll viljugra
orða minna
rjóður og
sannfærandi
bandamaður minn.
Við höfum barist
saman
undir stjórn minni
gegn óreiðu
huga míns.
Þú göfugi
starfskraftur
ljáðu mér áfram
blátt blóð þitt
með því mála ég
sannleikann.
Þú æðsta ást
Ó nafnlausa ást
ég bíð þin enn
vertu mér góð
ekki slá til mín
aftur.
Ég ber það ekki af
ef þú mætir mér
aðeins til þess eins
að skilja við mig.
Ekki hlæja mig
mig þyrstir svo
í ástarsoðið.
Súptu með mér
af bikari hamingju
og svölum þorsta okkar.
Stam
Ég ætlaði að tala
þegar raddbanda-loftpressan
fór í gang
af gömlum vana
það tók mig tíma
að stöðva hana.
Tryllitækið verður oft
stjórnlaust
og stimpillinn tautar
í sífellu.
Þá þagna ég
og skammast mín
fyrir að geta ekki
talað
eins og aðrir.
Blús
Tónar söngsins
svipbrigði taktsins.
Heilög dansspor
hljóðfæranna
taka þátt
í sorglegri trúarathöfn
blárra manna.
Brosið, stoltið
brotin karlmennskan
kveljast í faðmlögum
munnharpan
segir söguna.
Blús tónlistin
Dökkt hörund
tónlist hjartans
fær útrás.
Flekkuð hljóðfærin
útvarpa játningu
karlmennskunnar
yfir ósigri í lífinu.
Blámi bjargarleysis
og sjálfvorkunar
skín nú
á þessa píslarvotta
ástarinnar.
Komandi stúdentspróf 1992
Eimreið
við sjóndeildarhringinn
mín
bíður böðull
stjórnlaus
til alls vís
útkomur
prófa.
Stúdentspróf í líffræði
Á morgun ráðast
örlög mín,
verður gæfan
mér við hlið?
Ég hef verið
vígbúist
og stend álengdar.
Ég óska þess
að þá hértól
sem ég valdi
séu þau réttu.
Því bardagann mikla
sigra ég á morgun
ég vinn.
Munnlegt próf
Munnlega prófið gekk betur en ég bjóst við.
Ég hafði búist við löngu hrapi niður bjargið
en ég held að fingurgómarnir haldi vel við brúnina.
Þá veit ég að fingurbjargið getur ekki haldið þessari þyngd lengi uppi.
Blær lífs III
Fæðingarstofa sannleikans
þar sem allir glugga standa opnir
og blærinn streymir um
til að standa að getnaði orðanna
sem að syngja saman
um sannleikann
þar sem hann fæðist
innan um blæ lífsins
í formi ljóðs.
Vofa eða spegill
Hvort ert þú
vofa eða spegill?
Tvær manngerðir
hvorugar lifa!
Hvor ert þú?
Bless
Allt dauðlegt
bíður nú
heldur anda niðri
og starir á mig
bíður eftir mér.
Þegar ég sný mér við
lifnar allt við
og brosir.









