Bragð – ljóðabók

  

Bragð

Ljóðabók nr. 1

 frá 1991-1992

__________________________________________________________________

 

Bragð

 

Ég fann angan

af ávexti

ég sá fyrir mér

safaríkan kúptan hlut

ég hafði allt á hreinu

nema hvernig bragðið

myndi verða.

Kannski þú getir bragðað

á ljóðinu mínu.

 

 

Til hvers?

 

Til hvers

er að hrifast af stúlku

bara til þess

að vera reiðubúinn

að hafa sífelldar áhyggjur

af tilfinningum hennar

í garð þín.

 

Er það þess virði

að gefa svo mikið

af sjálfum sér

 

að setja sjálfan sig

í svo mikla hættu

án þess að hafa stjórn

á girndum sínum

og löngunum.

 

Mín reynsla

sagði mér óskemmtilega

dæmisögu

með mjög sorglegum

endi

og þá sögu vona ég

að engir mínir vinir

heyri sagða.

 

Því nú er ein stúlka

i mínum hug

sem hefur allflest það

að bera

sem ég óska eftir

 

þó vil ég ekki

gefa mig allan

á hennar vald

 

ég gæti mín

hef stjórn á hlutunum

læt minn eigin vilja

ráða ferðinni

 

læt hamingjuna mína

ef einhver er

verða mína

samkvæmt mér.

 

 

Blús lag

 

Kjaftæði, kjaftæði

og barmaraus

endalaust mæðuvæl!

 

 

Þjóð myrkursins

 

Hver sækist eftir

að vera frjáls

í rauninni

 

leggur þú þig svo

mikið fram?

 

Að reyna að ná

fram

því endalausa

og vonlausa takmarki

blekking, blekking

 

allt það sem við

þekkjum

er blekking

 

því að við mannfólkið

sjáum aðeins

skugga veruleikans

leikvöll guðana

 

við sjáum afmyndaðar

frummyndirnar

afleiðingar hlutanna

 

það sem er satt og rétt

er ekki til hjá okkur

 

við eruð þjóð myrkursins

búum sælt í veröld

skuggana.

 

 

Heims sannleikur

 

Tilverusvið ranginda

heimur okkar

þar sem réttlæti

krýpur daglega

fyrir ranglætinu

 

hvar er frelsið, hamingjan?

heimkynni dyggðanna

 

allt þetta er ekki

hjá okkur mannfólkinu

og utan

okkar veruleika

 

heimur ímyndunar

selur ýmsar myndir

af ánægju

og vellíðan

með ramma úr draumum.

 

 

Hvað er ég?

 

Ég

lætur vel og illa

í eyrum

ég er ég

illa falin eining

loftkenndur hjúpur

fylltur ást, hatri og ótta,

hugrekki, vonum og draumum,

þrám, fegurð og ljótleika

 

því allir hlutir þessir

sitja fangelsaðir

í líkama

sem mér var útdeilt

eins og hjarta átta

úr spilastokki

 

ég misskil ekki

sjálfan mig lengur.

 

 

Mæðuraus

 

Meiri mæða, meiri mæða

ég óttast ástina

sjálfan mig

og afleiðingar gjafabrölts

af minni hálfu.

Hvað vill hún

ég er ekki fullkominn

hrífst hún af mér?

Stenst ég hennar kröfur

frumkvæðið er ætið mitt

en hvað vil ég?

Vil ég elska hana

og eiga það í hættu

að ást mín verði

ekki endurgoldin.

 

Þörf einstaklingsins

fyrir ást, er mikil.

Ástin er eins og

reglusöm klukka

sérhver tiltekin tími

hentar einum

tíminn vinnur annaðhvort

með þér

eða á móti þér

og ég kann á klukku.

 

 

Rúmið

 

Rúmið, góða rúmið

fjölþætt verkfæri

heimili, griðarstaður

takmarkað umhverfi

þar sem margar hugsanir

mótast og myndast

 

segðu mér sögu

gamla rúm

af mörgum

hefur þú haft

náin kynni.

 

 

Ó, bók

 

Hvað heitir þú

bók?

Hví hefur þú að geyma

svona leyndardómsfull

sannfærandi og trúverðug.

 

Þú ert fædd í ölæði

og ert drukkin

full af orðum og staðreyndum

markverðum setningum

eða hvað?

 

Ert þú hégómleg

eða hippi?

 flatbrjósta pappírsdýr?

 

Má ég

koma í heimsókn

til þín.

 

Við getum talað saman

og kannski

segir þú mér góða sögu

síðan

dettum við kannski í það

grátum í kross

og að lokum

kveð ég

og fer heim.

 

 

Meðalmennska

 

Fjandinn hirði þig

þú auma vera

hættuleg, sterk

hið mesta kvikindi

heimsins,

stærsta rola

sem um getur.

 

Þinn skuggi er fáfræði,

hégómi, ótti,

þessum lofttegundum

fáranleikans

andar þú að þér,

metnaðarleysi og vansæld

er þítt vatn og brauð.

 

 

Stolna vitið

 

Tempraða veikin

siðferðisbrjóturinn

knýr sig áfram

 

því þú ert eldsneytið

“þrællinn þinn”

og þú nýtur þess

þú fáfróði

 

alltaf ráða þeir sjúku

meðan hraustir hlífa þeim

með líkama

sem eyðileggst.

 

Sumir þora að hrópa

sannleikann

þá verða þeir sýktir

af rotnandi feðrum

 

deyja þá allir

hinir sömu og trúðu

og heimurinn verður

að spítala án starfsfólks

 

og allir deyja

deyja

deyja

og deyja.

 

 

Blúsari

 

Karlmaður að gráta

fyrir framan

allan heiminn.

 

Stoltinu hefur verið

sturtað niður

klósett vona hans.

 

Ekkert er eftir

nema að hrópa

vansælar setningar,

 

í átt að hinum lánsömu

til að tortríma

hamingju þeirra.

 

 

Vonbrigði

 

Fallna tréð

geymir enn

blek hugans

 

börkurinn er alltaf

hrjúfur

 

en safi draumsins

er jafn ferskur

 

og hugur dýrlings

 

lygi, allt er lygi.

 

Rætur trésins

eru enn ófríðar

og spilla fyrir

 

fallegu laufunum.

 

 

Heimili mitt

 

Heimkynni mín

aldrei er ég fjarri

dáður og

launaður yndisaukum

 

þau eru loftvarnarbirgi

þar sem ég er óhultur

fyrir loftárásum veruleikans.

 

 

Prófkvíði

 

Ég sé nú

að kæruleysið og samviskan

geta unnið saman

að göfugum málefnum

 

bara að ég hefði

tekið þátt

í krossferðum þeirra

til fyrirheitna táknsins

 

táknið

stytta stoltsins

úr styttunni má lesa

sögur af dugmennsku

sögur af kjarki

og heiðarlegri vinnu

 

en ég get bara horft á styttuna.

 

 

Hvað er ég nú? (5/2/92)

 

Mér er lokið

ég er útbrunnið sár

sá einstaklingur sem

missti af eimreið

kraftaverkana.

 

Ég er tákn þess

minnismerki þess

stytta þess manns

sem aldrei getur lokið

við ætlunarverk sitt.

 

Ég er latur

ég er heigull

ég verð sú fyrirfram ákveðna minning

sem aldrei varð.

 

Ég þekki ekki ljóð

frá stórutá

líf mitt er námskeið

keyrslukúrs í eiginleikum,

þar sem lokaprófið

er frumstig fullkomnunar

 

sem betur fer hefur enginn sem ég þekki

staðist prófið.

 

Ég með

 

Leikritaför verður farin

ég fer með!

 

Togaður af löngun,

skyldu, abstrakt

sýndarmennsku og þroska.

 

Ýkt andlit,

kjarnanum svarað,

leikur af efni

og áhorfendum.

 

Já, ég með!

 

 

Enn aðrir gluggar

 

Gluggar

leit af von

við starandi

leitandi

takmarki

drauma okkar.

 

Þessa glugga

er ekki hægt

að opna.

 

 

Sinéad O´Connor

 

Falleg rödd

næm, rík

veruleg, kona

sendiboði réttlætis.

 

Sinéad O´Connor,

fallegasta lag

sem ég hef heyrt

„Black boys on mopeds“.

 

Heillandi vera,

sorgþrungin og

umhyggjusamlega

baráttuglöð.

 

 

Heldur mig elska þig 

 

Þú litla stúlka

heldur mig elska

þig

fast handtak

þoka.

 

Ég er Moliére

og þú ert leikrit

 

þú ert stelpa

 

en ég er sannleikur.

 

 

Orð

 

Þetta er sá tími

sem mér er úthlutaður

lífið þitt er eyða

í bók.

 

Þú verður að kunna

að skrifa æviverk þín

jafnóðum

í eyðurnar.

 

Uppeldi er rithönd,

staðreyndir lífsins eru orð

skilningur er

samsetning orðanna.

 

Merkingin er ég.

 

 

Klukkan fjögur

 

Skammdegi

kvöl

gleði

gráar skorður.

 

Ég

fjarlægur

í hamingju

í paradís.

 

Í miðju kryddsins

samt fjarri

vindur blæs

sólin er vandlát,

 

ég þigg

gjafir þínar.

 

 

Mök

 

Skorðaður

við sekundur

hlaupandi frá

böðli þínum

upptekin

við mök mín

við letina.

 

Stöðugt

samræði mitt

er sæliauki

gleðinnar,

ég hylli

og hætti ekki

 

held áfram

til fróunar

 

og tíminn hlær að mér.

 

 

Klæðnaður

 

Status

tákn

dýrkun

eða dauði

 

áhyggjur

stolt.

 

Vani

hefð

uppeldi,

 

áhrif

tilgangslaust?

 

 

Bjór

 

Tröll

hamingjukú

mjólk múgsins.

 

Spiritus sparnaður

sérstök blanda

Egils dökkur

drottins djús

dýrt þér til handa

 

dýru verði greitt

síðar á ævinni.

 

 

Sál

 

Frummaðurinn

neitar

að koma úr fortíð

 

kjarni sólar

hitar mig ekki

 

hvað er að?

hvað er ég?

 

Sál

blómkál á holdi

ég er frumstæður

lifandi í tækni

ásamt fáfræði

og fordómum

 

vitsmunir frummanns.

 

 

Svarið

 

Já, það er satt

ég er feiminn

samt ekki

 

bæði framfærin

og óframfærin

ekki vitandi

 

vandræði

ungdómur.

 

Verða vitsmunir

og þroski

eitthvað frambærilegri?

 

Svarið er ég.

 

 

Von andi

 

Geta klófest

eignað mér

von

konu

 

brosandi hugsun

ástgjafa

sængurver mitt

og sáluhjálp.

 

Minn frelsari

og fangari.

 

 

Félaginn

 

Hann blekkir

illa

 

og hugsar

illa

 

hagar sér oft

illa

 

hann lýgur

illa

 

honum gengur illa

að glata sveindómnum.

 

 

Ástand

 

Svefn

þjófur alls

og bjargvættur.

 

Vaka

vinur manns

og morðingi.

 

Dögunin er flótti

vingjarnleg öskrandi kona

sem rétt áðan

 

bjargaði morðingjanum

frá sólsetrinu.

 

 

Vakandi

 

Ég sit

undir trénu

spjalla við

sólina og vatnið

 

sæll

í einveru

eilíft vakandi

eilíft brosandi

vinur

 

græn tún

ávextir

bardagar

við veruleikann

 

við svefninn.

 

 

Athygli

 

Ég varð athygli

eina fallega tréð í skóginum

þar sem gyðjan kom að mér

og skoðaði útlit mitt

 

eins og konungur

vék ég frá augum hennar

bæði tortryggin og stoltur

 

ég er barnið sem

brenndi sig á kertaloganum.

Hvenær vinnst mér hugur á ný?

 

 

Dögun  

 

Nótt

auður völlur

er hjarta mitt

endalaus nótt

einn dag hef ég lifað

í einu.

 

Sólsetur

sem ég hataði og elskaði

það er eilíf nótt

ég óska

eftir rólegri og fallegri dögun

 

ég vil fallega dögun

ástar í hjarta mínu.

 

 

Missandi

 

Nú er ég reiður

klemmdur milli

óþekktra efna

 

þunglyndi mitt

byggði súlur

úr biturð og gremju

lögunin eftir

einveru

er orðin gígantísk

 

halda mætti

ég væri

að missa vitið

 

ekki þekkjandi

eigin hug

missandi vitið.

 

 

Ferðaskrifstofan

 

Smeykur og þögull

bærði hann vit sín

nú skyldi

sínast ákveðinn.

 

Einbeittir alvörusvipur

þjónn óttans

varð grandalaus

um tíma.

 

Harður, grimmur raddblær

hnykklar sig

úr hálsinum

og augunum.

 

Skopleg dauðagríma

fullkomnunar

var smeyk

 

en ógnandi við starfskonuna.

 

 

Óm

 

Hann fann fyrir sér

sem fórnarlamb

og sigurvegari

 

hann stendur

við altari kirkjunnar

og hrópar

þið eruð hálfvitar

 

réttlætið er rúmlak

réttlæti hefur aldrei verið til

 

ég heyri enn

óminn af honum

 

hann er vitund mín.

 

 

Svangur

 

Í gýg efnisins

heyrist sultarkall

verkstjórinn kallar

og lætur símann

hringja látlaust

 

oftast svara ég

en læt það nú ógert

um stund.

 

 

Eitt með öllu

 

Allt er eitt

ekkert víkur frá eðli alls

náttúrulegir þræðir

flétta öllu í eitt

 

ég er allt

og ég er ekkert

 

ég er einstaklingsbundið

fjölmenni

 

cosmos er ég

allt er eitt.

 

 

Gunni

 

Situr skrifandi

dyggur förunautur

eigin hugarefna

 

þrautlaus

leggur hann leið sína

að viskunni blindu.

 

 

Vani

 

Hvað gerði ég?

Því er lokið!

 

 

Fórn

 

I.

Ég skal segja

ég skal heilsa

stíga yfir

gjótu smámunar

og heila

taka fyrsta skrefið

það er hlutverk

karlmennsku minnar.

Alltaf er mér ætlað

að fórna mér

og stolti mínu?

Stundum gef ég mig

á vald

hverfula vinda.

 

II.

Því er þarfnast

þess er ég leita að

þarf að fórna

fórna

til að öðlast

æðstu gleðina.

Hluti af mér

er fórn

og vöruskipti örlagana

ætla mér síðar

kannski

ástkonu

hamingju í farteski.

 

 

Að ögra bekknum

 

Það er gaman að ganga

geggjaður um tún.

 

Sífellt hneyksla hina

og hortugur á brún.

 

 

Mey

 

Ung stúlka hress

hugljúf og fín

þekkir ekki stress

þráir glens og grín.

 

Saklaus og siðprúð

hin seitlandi mey

vel merkt meyjarskrúð

mannbundið grey.

 

 

Við deyjum

 

Já, lífið kveður

ásamt þér

þerraðu tár þín

því líf þitt lifir

þó þú sért flúinn

á vit sannleikans

um líf eftir dauðann.

 

Í sal þessum

hefur þú vafalaust

rekist á spegil,

hvernig líkaðir þér

spegilmynd þín?

 

Ég sjálfur

skapaði útlit mitt

innan spegilsins,

þerraðu tár þín

 

„Bless“

 

ég kveð.

 

Share to:

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Tumblr